20. júní 2007 klukkan 08:34
Cramerinn mættur aftur á bloggsviðið eftir að hafa átt glötun í undrum blogg heimsins 123.is. Ég áttaði mig á því að ég nennti allsekki að blogga, en fyrst maður er kominn í vinnu þar sem maður hefur í raun stundum ekkert betra að gera nema að lesa Íslandsklukku eftir Halldór Laxness, þá fer maður að hugsa sig tvisvar um ! :D Ég orðin bílaleigusamningaundirrataramaður, s.s. ég læt fólk leggja allt sitt á veð fyrir bíl með 5 rispum á. Heheh, elska fólk.
Annars geri ég fátt annað en að skoða mig í kring á netinu, ég sé allskonar rugludalla dót, eins og topp undarlegustu drykkir í Japan.
Skal ég gefa ykkur smá dæmi um klikkun Japana:
Snillingar. Snillingar.
Smá dæmi um undarlega drykki Japana.
Yaaaattaaaa!!
3.Sæti Gúrku Pepsi.
Ef þetta gefur ekki vatn í munninn,
þá hvað..

Eftirlæti Grænmetisætunar. 2.Sæti Diet Vatn.
Með allt það bragð sem að venjulegt vatn hefur að geyma,
nema með engum kalóríum.
Æji, afhverju bara?
1.Sætið Hremmur...
Krakkabjór
Ef krakkinn þinn er ekki nógu skemmdur fyrir,
þá er Krakkabjór málið.
Djöfull langar mig að vita hvernig þetta smakkast.
Kannski eins og Gúrkubjór?Ég get sagt ykkur það að Japanar eru stórskrýtnir. Hafiði séð sjónvarpsþættina með þeim. Sem dæmi er kannski þáttur sem heitir "Hvernig á að grínast í jarðaför!" eða bara þættir sem að heita eitthvað eins og "Ping Pong"
Give it a rest maður!
Allavegana, þá er karlinn bókaður til Bandaríkjana 2. ágúst með Ölmu skvísu, og ætlum við að koma heim með feitar ferðatöskur og tan sem að aldrei sést áður í þessu bæjarfélagi.

Guð blessi bandaríkinn.
Bawhaha.
Komið með uppástungur um búðir fyrir okkur.
Cramerinn kveður.
Sjaldséður.
Daniel Cramer
24. janúar 2007 klukkan 00:58
Eyh yo!
Jæja, ég hef verið að heyra sögusagnir af froðuballi? Hvernig virkar það? Á maður að mæta í handklæði og
sínum besta sundbol ? Kannski flotgalla? Who knows. Mig hlakkar allavegana ýkt til að prufa þessar froður. Þetta á víst að vera voðalega spes froða, kannski er þetta froða með bragði. Beef? Heh, nei held ekki. Okey, áfengd froða? Sounds good, fyrir utan að maður myndi fá ágætist áfengis eitrun, en ég meina hey, ekki hefur það stöðvan almúgann í það að skemmta sér. Svo er það spurning um klæðnaðinn. Okey. Ég hef alveg hugsað mér það að það sé í lagi að mæta í stuttbuxum og kannski eitthverjum funky bol. Held það sé ekki sniðugt að mæta í sínu fínasta í þetta ball. Skyrta og bindi í froðupartý? Gæti virkað, en jakkaföt. Veit ekki. Alveg eins og að mæta í pulsubúning á Alþingi. Svo eru náttúrulega fólk, og þá meina ég oftast kvenkynið, sem að verður að mæta í sínu besta og fínasta á hvert partý.
Sleppið því bara.
Girnilegast í heimi maður.
Hef verið að taka mig soldið á núna, hlaupa og lyfta og svona. Byrjaði
96 eða 97 kg. Er núna orðinn 85 kg eða svo. Má alveg monta mig aðeins, I earned it.
Annars lifið heil og sé ykkur á ferðinni fólk..
catch you on the flipside.
cramer.
Daniel Cramer
12. janúar 2007 klukkan 05:03
Aagh. Unglingar.
Hvað vitum við í dag?
Erum við á eilífðri leið niður klóstið í leit að hamingju?
Fyndið hvernig að unglingar hafa breyst í gegnum árin. Unglingar til að byrja með voru að leika sér með bein af forfeðrum sínum og óveður var besti vinur þeirra. Eini maðurinn með slúðrið var Siggi Ingimundars eða móðurafi Björn Geyrs. Tímar í dag hafa breyst svo mikið, virðingar hlutfall til alls fólks hefur farið niður í vaskinn.
Ætla að koma með smá "Back in teh days" og sjá hvernig það er síðan "In teh todaydays."
Back in teh days. Áfengislausar skemmtanir voru virtar.
In teh todaydays. Hvað er áfengislaus skemmtun?
Back in teh days. Unglingar hlóu dátt og vildu taka þátt.
In the todaydays. Unglingar koma með sveðjur í skólann og berja kærustur sínar.
Back in teh days. Mamma manns og pabbi voru bestu vinir manns.
In teh todaydays. Minnir mig á það, hvar er mamma eiginlega?
Back in teh days. Unglingar sem æfðu sund voru töff.
In teh todaydays. Hah. Akkurat.
Back in teh days. Allir lærðu heima og gerðu sínar lektíur.
In teh todaydays. Unglingar lærðu heima seinast þegar það var verkfall og það var til að fylla út atvinnuleysibætur.
Back in teh days. Framhjáhald var litið mjög illum augum.
In teh todaydays. Unglingar halda framhjá eins og ekkert sé. Og fá samt gellur.
Hvað er við þessu að gera?
Kannski minna af kjaftæði og meir af raunveruleikanum?
Hvað veit ég.
Kannski spurningin sé, hvað veist þú?
Cramer out.
Daniel Cramer
04. janúar 2007 klukkan 18:07
Cramerinn er mættur aftur.
Jæja fólk. Áramótin gengin yfir og ekkert eftir nema skóli og vinna. Þar sem ég setti mér þau áramótaheit að koma mér í jákvæðan fýling, koma mér í form á við afríkubúa (grennast) og minnka drykkjuna og fl., þá verður þetta fínt ár. Því miður er íbúðin ekki ennþá kominn í hús en hún er á leiðinni. Doing 90 on the freeway babeh.
Okey, ég hef verið að pæla hérna. Celebs. Stjörnur. Okey, það er allt í lagi að ræða aðeins um fræga fólkið og þið vitið, allt þar á milli. Er þetta ekki komið útí öfgar þegar fólk er farið að tala um stjörnurnar sem áhugamál og hvað þá Trú. Okey, áhugamál, kannski skiljanlegt en að eiga frægt fólk sem áhugamál er álíka leiðinlegt og eiga áhugamál sem að saman stendur af frímerkjum og sykurmolum. "Woohoo, ég náði að festa sykurmolan á ennið á mér", meina hey, ætli það sé ekki fyrst time for everything. Skulum aðeins líta á frægt fólk sem trú. Ég veit að einn fótboltamaður er álitin trú í eitthverju landi, það mun vera hann Maradonna. Flott, næst á dagskrá hjá mér er að trúa á Eið Smára.

"Góði Eið Smári, gefðu mér styrk til að standa upp á morgnana" .. Tjah, ég er góður..
Ekki gefast upp á því sem þið trúið fólk.
Cramerinn out.
Daniel Cramer
14. september 2006 klukkan 02:00
Það er ýkt cool að fara með bílinn sinn í Reykjavík á verkstæði til að láta laga eitthvað sem að tengist eitthverju sem að lætur bílinn hitna óvenjulega mikið, en í raun leggja hjá vitlausu verkstæði. Og svo daginn eftir hringja á fullu í verkstæðið pirraður að enginn svarar, og svo loksins svarar hún. Og þá finnur hún ekki bílinn, það var ýkt ennþá skemmtilegra. Vildi að ég gæti gert þetta alla daga.
Endaði þannig að verkstæðið sem ég lagði bílnum hjá ætlar barað laga þetta svo ég þarf ekki að fara alla leið til Reykjarvíkur og færa bílinn aftur.
Vá hvað ég er ánægður að vera ekki með bíladellu. Life rules.
Hvað er málið með að setja ekki nógu mikið af kjúkling í salöt? Þetta girnilega kjúklinga / doritos / kál / kál / kál / kál / kál salat í mötuneytinu meikar alveg ekkert sens. Meikar jafn mikið sens og að ef maður myndi elda fisk um jólin. Ég hata þegar ég fæ mér salat, og ég er að búast við fullt af kjúlla, nógu mikið af bragðefnum til að splúndra matarlystinni, en fá svo bara 10 kjúklinga bita og restin er bara eitthvað grænt stöff, sem er gott já, en ekki þegar maður fær bara kál og kálið bragðast eins og skeið.
Smá pirringur, en ekkert sem að skaðar mig ekki á endanum
Bíllinn mun lagast.
Kál er gott fyrir mann.
Allt er gott sem endar vel.
Vonandi enda ég vel.
cramer out.
Daniel Cramer
03. ágúst 2006 klukkan 01:24

Þetta er mesti skór sem ég hef séð. Aldrei séð jafn mikinn skó.
Vá.
Ég verð í Flórída um verslunnarmannahelgina, verður þokkalega awesome. Fer í giftingu, dett í það, skemmti mér. Er búinn að versla ógeðslega mikið, á eftir að versla mér meira. Er að versla mér nýjan bassa núna, verður fínn fínn.
Vil samt minna fólk á það, að þetta er mesti skór sem ég hef séð. Ever.
Stay cool, skemmtið ykkur um helgina..
And that's how the cookie crumbles.
Dan The TinCan.
Daniel Cramer
26. júlí 2006 klukkan 07:40
Jei!
Wee!
Jahúú!
Píramídi!
Jahúú!
Wee!
Jei!
America, Here I come!
- 27. Júlí til 17. Ágúst. -
Eins gott að fólk verður mætt með skilti á flugvöllin "The Cramer Dude" þegar það er sótt mig. Annars verður Cramer reiður, og þið viljið ekki sjá þegar ég verð REIÐUR!!!
Fer til Bandaríkjana, loksins, á fimmtudaginn kemur. Byrja á indælu flugi til Baltimore. Fer svo þaðan í milliflug 3 tímum eftir og enda svo í North Carolina. Þetta verður alveg geggjað. En ég þarf að standast í þessu öllu aleinn. Ég komst varla frá Danmörku til Íslands og ég var þá með 2 félugum mínum. Enda örugglega í Kanada að selja límmaða með myndum af Garfield og vinum hans að lenda í allskonar ævintýrum fyrir flugfarið heim.You better be wrong Arnar.
Talandi um Arnar. Fór með honum að kaupa mér eitthvað smá narsl um daginn, endaði með stærsta Snickers sem ég hef séð og ógeðslegan drykk, með nafnið Tab, já, hann heitir Tab. (Gamli drykkurinn sem vil ýkt líkjast kóki ( afhverju, ég veit ekki ( svigi ( arnar á njarðlem)))). Vil bara að fólk viti að ég er ennþá að klára Snickersið og gengur það mun betur en ég bjóst við. Meir en hálfnaður. Þetta voru álíka góðar upplýsingar og að vita að söngvarinn í Creed sé að safna skeggi.
Tab afturábak er Bat. Interesting.
Ég er hoppinn uppí rúm. Sé ykkur öll þegar ég kem til baka. Stay classy.
Cramer out.
Daniel Cramer
08. júlí 2006 klukkan 16:53
Aa, góðan daginn öllsömul. Á þessum fallega laugardegi. Sólin skín. Grasið verður grænna með sekúndunni og MILF fara út að kaupa sér ís.
Ég elska svona laugardaga. Svo mikill dagur til að hangsa í allan dag, liggja í grasinu kannski, taka smá Maximum Tan á þetta og missa sig yfir klikkuðu pönki. Svo opnar maður sér bjór kannski soldið snemma. Sötrar hann hægt og varlega. Nýtur hvers sopa alveg til hins seinasta. *Grls* Heyrist þegar þú opnar bjórin. Hann rennvotur af köldulagi af móðu utan á honum. Hellið honum í glas, þið hellið the perfect hell. Finnur fyrir vökvanum snerta tunguna þína. Kyngið.
Ætla ekki alveg að fara útí hlutina eftir að maður kyngir. Segjum bara að bjórinn fer á betri stað. RIP.
Svo á ég afmæli á mánudaginn næsta. Í kvöld at my place, ætlum við strákarnir að hittast og grilla og svona. Svo eftir það má sumt fólk kannski koma, en ég hleypi ekki öllum inn. Nenni ekki að fá Aron Imprezu að tala um púströr.
Svo er ennþá planið að fara út til the States. Fer út alveg vaðandi í peningum, get ekki beðið. Ætla ýkt túristalegur út. Með svona belti fyrir allt draslið útan um mittið á mér, með blá/gul/græna tösku með ýkt mikið af hólfum sem maður notar ekkert. Glænýjum Púma galla í biluðum gallabuxnastuttbuxum.
Ætla s.s. eins og ef að Arnar hefði klædd mig upp.
Jæja, best að koma sér útí búð að versla smá hamborgara og pulsur fyrir kvöldið, er ekki að nenna að steikja eitthverja svaka Steik, það kemur seinna meir bara.
Elska ykkur.
P.S. Segið hérna fyrir neðan hvað planið er um helgina hjá ykkur?
Daniel Cramer
24. júní 2006 klukkan 20:18
Sæl og blessuð fólk mitt gott.
Vil byrja á að óska honum Eið sæta til hamingju með afmælið, tvítugur og verður smá afmælisteiti á Hápunktinum í kvöld, invite only reyndar, en staðurinn opnar síðan fyrir fólk auðvitað, og þá sé ég ykkur þar. I know I will.
Sit ég hérna með mitt glóðurauga og er að hangsa, hlusta á góð techno lagið, sem ég leitaði og leitaði af. Ætla að þakka stúlkunni sem að fann lagið fyrir mig, innilegar þakkir. Ég er enginn techno maður, ég hlusta á allt aðra tónlist, en þetta lag er bara, alltof svallt.
Pendulum - Fasten your seatbelts. Che che che check it out.
Nú er ég búinn að panta ferðina mína til Bandaríkjana, 27. Júlí til 17. Ágúst. Þetta verður algjör draumur, hitta fjölskylduna hans pabba, og fara útum allt. Get ekki beðið, þetta verður ein sú besta ferð sem ég hef farið í. Vil líka að fólk viti að mér líður mun betur, þó í raun verður þetta erfiðara og erfiðara, en maður er að sætta sig við þetta og komast í sátt með hlutina. Enn og aftur þakkir fyrir allt.
En já, í bandaríkjunum, mun ég byrja á að vera í viku hjá Robert (bróðir pabba) og Tammy eiginkonu hans og þrem dætrum hans. Þau lifa í Baltimore, Maryland, ef mig minnir rétt. Svo eftir það hitti ég vonandi Brian einn af mínum sárt söknuðu frændum sem ég sé svo sjaldan, ætlum að fá okkur bjór saman og hafa það gott. Vonandi þekkir hann eitthvað djúsí pakk og við förum í ofur kana partý þar sem það er ekkert nema McDonalds bjór og Burger King tónlist. Svo enda ég þetta með góðri viku með Ömmu og Afa, það verður ekkert nema næs. Ætla að versla mér alveg fyrir heilan helling. Kaupa mér kannski bassa og eitthvað sneddý.
Ætla að fara að koma mér í gírinn og svona, sturtu action, smá ritz á fónin kannski, höhö.
Held að stóra spurning sé, hvaða gír maður ætti að fara í.
Elska ykkur.
Daniel Cramer
25. maí 2006 klukkan 06:01
Hæ..
Vá, ég veit eignilega ekki hvað ég á að skrifa. Er búinn að ganga í gegnum margt, mætti eiginlega líkja því við íslenskt veður, eina mínútuna er allt í bulli en hina er allt í einu sólskin og allir ánægðir.
Ég sé líka hversu margir hafa sagt sín orð hérna á síðunni í commentinu fyrir neðan, og ég les þetta stundum yfir og yfir bara til þess að sjá hversu margir eru að hugsa til mín, þetta er æðislegt. Ég get eiginlega ekki þakkað ykkur á neinn hátt nema segja hversu þakkláttur ég er og ég nýt stuðning ykkar allra. Ég svo sannarlega nýt hans.
Vil líka að fólk viti að þó það kom ekki á jarðaförina þá er það bara allt í lagi og ég hef ekkert gegn þeim. Ég skil það vel að fólk átti kannski í erfileikum, eða hafði bara ekki tíma til þess. En auðvitað það fólk sem að kom þá vil ég þakka fyrir mig og þið eruð öll jafn æðisleg.
Ég kem með annað blogg bráðum, er bara að fara að vinna á morgun og hef lítin tíma í að skrifa eitthvað.
En þið eruð æðisleg öll sömul og takk fyrir mig. Ævilega.
Daniel Cramer